Davíð Lúther Sigurðarson, eigandi og framkvæmdastjóri Brava
Um Davíð

Davíð Lúther Sigurðarson

Eigandi og framkvæmdastjóri Brava ehf

Frumkvöðull með bakgrunn í auglýsingum, markaðsmálum og viðburðum.

Bakgrunnur

Rúm fimmtán ár í rekstri og uppbyggingu fyrirtækja

Davíð stofnaði framleiðslufyrirtækið Silent árið 2009 og var framkvæmdastjóri þess til 2016. Árið 2016 stofnaði hann auglýsingastofuna Sahara, sem sameinaðist Silent árið 2018. Davíð stýrði sameinuðu félagi sem framkvæmdastjóri þar til það var selt árið 2023. Árið 2021 stofnaði hann Sahara Academy, skóla í stafrænni markaðssetningu, sem fylgdi með í sölunni.

Á sviði viðburða stofnaði Davíð The Color Run á Íslandi árið 2015 og Gung Ho árið 2016. Hann var framkvæmdastjóri beggja þar til þeir voru seldir árið 2018. Á árunum 2015–2018 sá hann einnig um kynningarmál fyrir RÚV í tengslum við Eurovision.

Í dag er Davíð eigandi Brava ehf og hefur byggt upp sjö veitinga- og skemmtistaði á Selfossi og í Reykjavík. Hann hefur jafnframt víðtæka reynslu af stjórnarsetu í fyrirtækjum og félagasamtökum.

Ferill

Tímalína

2009

Stofnar framleiðslufyrirtækið Silent

2015

Stofnar The Color Run á Íslandi og tekur að sér kynningarmál fyrir RÚV vegna Eurovision

2016

Stofnar Gung Ho og auglýsingastofuna Sahara

2018

Silent og Sahara sameinast. The Color Run og Gung Ho seld

2021

Stofnar Sahara Academy. Brava ehf stofnað

2023

Sahara og Sahara Academy seld

2024

Framkvæmdastjóri og einn eigenda Oche Reykjavík

Til baka á forsíðu